VÍS: Tilnefningarnefnd VÍS óskar eftir framboðum til stjórnar

Tilnefningarnefnd VÍS auglýsir eftir framboðum eða tilnefningum til stjórnar VÍS vegna aðalfundar félagsins sem haldinn verður fimmtudaginn 21. mars 2024.

Frestur til að skila inn framboðum og tilnefningum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefningarnefndar er til sunnudagsins 4. febrúar 2024.

Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem unnt er að nálgast hér og á vefsvæði tilnefningarnefndar á heimasíðu VÍS: https://www.vis.is/tilnefningarnefnd/. Útfylltum eyðublöðum skal skila á netfangið: tilnefningarnefnd@vis.is. Almennur framboðsfrestur til stjórnar samkvæmt samþykktum VÍS er fimm dögum fyrir aðalfund. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar allt fram að því tímamarki, en um þau framboð verður ekki fjallað í tillögu tilnefningarnefndar. 

Rökstudd tillaga tilnefningarnefndar um bestu samsetningu stjórnar verður birt samhliða aðalfundarboði. 

Vis Insurance (LSE:0QDY)
Historical Stock Chart
From Mar 2024 to Apr 2024 Click Here for more Vis Insurance Charts.
Vis Insurance (LSE:0QDY)
Historical Stock Chart
From Apr 2023 to Apr 2024 Click Here for more Vis Insurance Charts.