Sjóvá: Upplýsingar um virðishækkun óskráðra hlutabréfa og ávöxtun af fjárfestingareignum í stýringu á árinu 2021

Sjóvá-Almennar tryggingar hf: Upplýsingar um virðishækkun óskráðra hlutabréfa og ávöxtun af fjárfestingareignum í stýringu á árinu 2021

Í drögum að uppgjöri á fjárfestingarstarfssemi er virði óskráðra eigna fært upp um 520 m.kr. á fjórða ársfjórðingi 2021. Þessi breyting skýrist að mestu leyti af því að virði hlutabréfa í Controlant er fært upp á fjórðungnum en auk þess er virði hlutabréfa Loðnuvinnslunnar og Kerecis fært upp. Samkvæmt drögum að uppgjöri nemur ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu um 18,4% og nema fjárfestingartekjur af eignum í stýringu um 8.000 m.kr á árinu 2021.

Frekari upplýsingar um afkomu félagsins verða kynntar við birtingu ársuppgjörs þann 10. febrúar nk. Áréttað skal að uppgjörið er í vinnslu og kann því að taka breytingum fram að birtingardegi.

Nánari upplýsingar veitir:

Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is

Sjova-almennar Trygginga... (LSE:0QS8)
Historical Stock Chart
From Apr 2024 to May 2024 Click Here for more Sjova-almennar Trygginga... Charts.
Sjova-almennar Trygginga... (LSE:0QS8)
Historical Stock Chart
From May 2023 to May 2024 Click Here for more Sjova-almennar Trygginga... Charts.