VÍS: Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar VÍS vegna aðalfundar 2023

Aðalfundur Vátryggingafélags Íslands hf. verður haldinn fimmtudaginn 16. mars 2023 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins Ármúla 3, 108 Reykjavík, auk þess sem gefinn er kostur á rafrænni þátttöku á fundinum.

Framboðsfrestur vegna stjórnar og tilnefningarnefndar Vátryggingafélags Íslands hf. rann út þann 11. mars 2023 kl. 16:00.

Meðfylgjandi eru upplýsingar um þá aðila sem gefið hafa kost á sér til setu í stjórn og varastjórn annars vegar, og tilnefningarnefnd hins vegar. Athygli er vakin á því að Stefán Árni Auðólfsson, sem tilgreindur er í skýrslu tilnefningarnefndar hefur dregið framboð sitt til baka.

Er það mat stjórnar að öll framboð séu gild sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga nr.2/1995. Þar sem fimm einstaklingar hafa boðið sig fram til aðalstjórnar, tveir til varastjórnar og þrír einstaklingar hafa boðið sig fram til setu í tilnefningarnefnd er ljóst að sjálfkjörið er í stjórn og tilnefningarnefnd.

Önnur fundargögn tengd hluthafafundi  má nálgast á vefsíðu félagsins: https://vis.is/hluthafafundir/

Reykjavík, 11 mars 2023

Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf.

Attachments

  • Framboð til tilnefninganefndar VÍS 2023
  • Framboð til stjórnar VÍS 2023
Vis Insurance (LSE:0QDY)
Historical Stock Chart
From May 2024 to May 2024 Click Here for more Vis Insurance Charts.
Vis Insurance (LSE:0QDY)
Historical Stock Chart
From May 2023 to May 2024 Click Here for more Vis Insurance Charts.