Kvika – Méllon hs: Uppgreiðsla skuldabréfs

Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu MELLON151229 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða upp skuldabréfið á næsta vaxtagjalddaga sem er þann 15. júní næstkomandi. Sjóðurinn mun því þriðjudaginn 18. júní 2024 greiða upp lánið. Greiðslan er tilkomin vegna afborgana af og uppgreiðslu á skuldabréfum í eigu sjóðsins síðustu vikur og mánuði.Nánari upplýsingar veitir Kvika eignastýring hf. sem er rekstraraðili útgefanda.